Sérstakar síður fyrir sérstak fólk( þið vitið hvað ég meina)
28.12.2006 21:23:37 / manu

Grín

Þetta var bara grín VIÐ ERUM HÆTTIR

Ingimar og Bjössgeir


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 23:51:52 / manu

Endurkoma og Blekkingar!

Þegar kollegi minn Bjarni Már skrifaði um endalok Beans-manna þann 24 Des síðasta ár brustu margir í grát, hjörtu okkar heitustu aðdáenda urðu svört og sumir hugsuðu hvaða tilgang hefur lífið nú. Ingvar okkar mesti Óvinur hefur ekki haft neitt fyrir stafni síðasta ár.

Það sem líklega enginn áttaði sig á, var að það voru falin skilaboð í síðasta bloggi Bjarna.

Ef þið svertið allt bloggið, þá sjáið að við boðuðum endurkomu okkar þennan dýrindis dag 09.12.06.

Nú mun Samfélagið vakna á ný!

Fyrir hönd okkar Beans-manna byrja ég byltinguna!

  Salut!         

Ingimar.


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 17:07:06 / manu

Jólakveðja og endalok Alþýðunnar!!

Ég fyrir hönd Beans manna vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem sóttu þessa síðu á þeim stutta en jafnframt gefandi tíma er við vorum við völin og bæði til þeirra er hylltu okkur og til þeirra er voru með skítköst (nei bara djók Ingvar). Þessi síða hefur nú legið niðri í dágóðan tíma eða frá 7.nóvember síðastliðnum og er það dágóður tími en einhvern tímann þarf alltaf eitthvað að enda og hér ENDAR okkar partur af þessu rafræna kerfi okkar Íslendinga...

Eigi þið góða hátíð krakkar mínir og fyrir hönd okkar Beans félaga viljum við segja

                                                GLEÐILEG JÓL 

              Jóla og Hátíðarkveðja Bjarni Már...  

Við komum aftur 09.12.06


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 18:05:58 / manu

Jeg hedder ingimar

Ég var að pæla í því bara núna rétt í þessu, þegar ég sá jólaplötu og skoðaði hvaða lög væru á henni: Þá heyrði ég lagið 10 litlir Negrastrákar.... og var bara pæla sfhverju er það flokkað sem jólalag?? einhver sem á svar við því???

svona væri kjörseðill hjá flestum:
 Ingimar X

Bjarni


» 86 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 13:42:31 / manu

Lýsi og mjólk

Lýsi og mjólk! Fékk mér lýsi og mjólk áðan og allt í einu langaði mig að blogga. Takk fyrir þetta frábæra ráð Heiðrún Erna.

Punktablogg eru nett og ég er líka nettur!

  • Djamm á Föstudaginn
  • Tottenham- Arsenal á Lau
  • Arsenal voru heppnir
  • Tottenham voru óheppnir
  • Tottenham yfirspilaði Arsenal í fyrri hálfleik
  • Ég hef aldrei séð Tottenham spila jafnvel
  • Ég var gráti næst þegar Arsenal jafnaði
  • Ég var sár þegar leikurinn endaði 1-1

En annað ég horfði á Gangs of New York í gær heima hjá Kalla. Ég mæli eindregið með þessari rosafengnu mynd. Þvílíkt meistarastykki.

En hey æfing eftir klukkutíma..................Þangað til veriði sæl

INGIMAR

 

  


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 10:47:47 / manu

Hazzi til lukku með daginn!



Bravó!

» 9 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 18:27:03 / manu

Vellystingar eða?

Já ég fór að velta fyrir mér hvort að það væri ekki fínt að  flýja bara land í öllu sínu veldi og setjast að í einhverju flottu landi eins og Oman, Bahrain já eða kannski Qatar. Annaðhvort er þetta leiðin til helvítis eða draumur hvers manns þegar á hólminn er komið. Maður gæti sest að og gerst baunabóndi :) í góðu yfirlæti, orðið hirðmaður konungs já eða bara smali að íslenskum sið og komið sviðum og hangiketi í umferð í landinu sem maður býr í og verið síðan minnst síðar sem manninum sem innleiddi nýja menningu landsins...Ooo þetta er indislegur draumur...sem ég vona að rætist einhvern tímann síðar á ævinni....

                Hinn draumgóði Bjarni Kveður 


» 11 hafa sagt sína skoðun

12.10.2005 22:36:23 / manu

Glans Kalli Bjarni!!!!!

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort IDOL spjöldin sem núna er hægt að safna verði svona HIT eða verði svona eins og Poxið og Pokemon dæmið. Ef maður safnar 5 stjörnum og skilar þeim þá fær maður 5 IDOL spjöld í pakka. Já þetta hljómar spennandi.

En svo var ég að pæla þegar fólk verður kannski farið að bítta á spjöldum, þá muni þetta hljóma svona:

    "Hey viltu bítta á glans Kalla Bjarni og Davíð Smára,,   

   en þetta var bara pæling

Ingimar kveður að sinni...


» 26 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 18:28:26 / manu

I´m still right here

Sólin er farin og snjórinn byrjaður myndast á götum úti...já það er kominn vetur. Þetta fattaði ég bara rétt áðan þegar ég leit út í skammdegið að veturinn væri skollinn á. Já en allaveganna, það er meira sem hefur gerst í þessari viku og meðal annars það að Hannes Hólmsteinn heldur áfram barnalátum eins og honum er einum lagið(ég segi bara við þig Hannes eins og ég sagði við vin minn Wayne Rooney "Reyndu að þroskast" )...Hey Fokk ég held sé að fá glymstoðarkvísl í hryggjarliðina en annars er þetta bara einskorðað dæmi um hluti sem maður má ekki láta framhjá sér fara. Sé ykkur í næstu færslu en ég enda hana hér með litlu textabroti:

 

                    Jújú Backstreet Boys voru nú einu sinni meistararnir

Girl, I know you're hurting
Right now you feel like
You could never love again
Now all I ask is for a chance
To prove that I love you

 

Bjarni Kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 23:05:03 / manu

HólyKrap!!

ég rakst á þessa mynd á www.godfellas.tk...........   Vildi bara sýna ykkur


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.10.2005 22:29:36 / manu

haaa???? neinei eða juju

Ja svolítið langt síðan ég hef bloggað hérna, hef verið ansi upptekinn. Það er skólinn og svo eru það æfingar og svo síðast og allra síst Ökuskóla helvítið:evil::evil::evil:.. Þvílík leiðindi...

  •    punktablogggg!!! jaja
  • Við erum ekkert góðir í paintball þrátt fyrir allt
  • Þetta var mjög slöpp helgi
  • ég fæ líklega bílpróf á Fimmtudag
  • Ingvar er froðhaus
  • Landsleikjahelgar eru ömurlegar
  • Ball næstu helgi
  • Mæli eindregið með því að mæta í búning
  • ég get ekki sagt meira

 Áfram Tottenham


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.10.2005 21:42:57 / manu

Skoðanakönnun!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 21:22:54 / manu

Engan Pirring

Hey!!! Allir út á dansgólfið...vúhú...tökum saman nokkur létt spor við dynjandi músíkina...ojeee...úff þetta er svo gaman þegar allir skemmta sér svona hrikalega vel...eitt spor til hægri og svo snú til vinstri...fetta upp á líkamann...tökum svo einn léttan hring í endann...já þetta var frábært í dag...ég þakka fyrir tímann í dag, sjáumst síðar....

                                   Danskennarinn Bjarni kveður 8)


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 21:15:30 / manu

Þið eruð að gera grín af sjálfum ykkur!!!

Þið eruð að gera grín af sjálfum ykkur!!!

Það er á hreinu, því að þið hafið verið að tala um að Beansveldið sé að hætta. HAHA. Sjaldan hef ég heyrt jafn mikla vitleysu. Við erum rétt að byrja, þegar það kemur ekki blogg á síðunni í 3 daga, þá þýðir það ekki að síðan sé á einni né neinni leið á að hætta. Það er bara eitthvað sem fólk verður að skilja hvort það eru AÐDÁENDUR eða FÓLK SEM HATAR OKKUR.

Þegar ríkir þögn á þessari síðu erum við að styrkja okkar í talandi máli á almenningsstöðum.

Þannig að ykkar kenning um að við séum að hætta er bara ekki alveg að ganga upp!

Svo vill ég minna á tvífarana og slúðrið!

Ingimar kveður að sinni...:klikk:


» 41 hafa sagt sína skoðun

27.09.2005 17:39:06 / manu

Skoðanakönnun!!!

Enn endilega kjósiði í nýrri könnun


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2